Ármann kjörinn bæjarstjóri

Ármann tók formlega við starfi bæjarstjóra á fundi bæjarstjórnar í …
Ármann tók formlega við starfi bæjarstjóra á fundi bæjarstjórnar í Kópavogi í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ármann Kr. Ólafsson var á fundi bæjarstjórnar í kvöld kjörinn bæjarstjóri Kópavogs. Nýr meirihluti sjálfstæðismanna, framsóknarmanna og Y-Lista Kópavogsbúa tók á þeim sama fundi við stjórnartaumunum í bænum.

Guðrún Pálsdóttir, sem verið hefur bæjarstjóri frá júní 2010, lætur þar með af störfum en samkomulag hefur verið gert við hana um að hún verði aftur sviðsstjóri hjá bænum.  

Margrét Björnsdóttir, bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna, var kjörin forseti bæjarstjórnar.  

Á fundinum gerði Ármann grein fyrir stefnu nýs meirihluta. Í málefnasamningnum segir m.a. að áhersla verði lögð á niðurgreiðslu skulda og enn fremur að fasteignagjöld á íbúðir og önnur gjöld verði endurskoðuð með lækkun í huga.

Í  honum er einnig kveðið á um að vinnu við nýtt aðalskipulag verði lokið fyrir árið 2013 og að breyta skuli skipulagi á Glaðheimareitnum. Söluferli þar hefjist sem fyrst á hluta eða öllu svæðinu. Þá skuli ljúka skipulagi á Kópavogstúni og hefja sölu á lóðum þar.

Hefur verið bæjarfulltrúi frá 1998

Ármann er fæddur 17. júlí 1966. Hann er stjórnmálafræðingur að mennt og hefur verið bæjarfulltrúi í Kópavogi síðan 1998. Hann var forseti bæjarstjórnar á árunum 2000 til 2001 og 2005 til 2007.  

Hann hefur átt sæti í bæjarráði en auk þess verið formaður skipulagsnefndar Kópavogsbæjar, skólanefndar, atvinnumálanefndar og  félagsmálaráðs. Þá var hann formaður stjórnar Strætó á árunum 2006 til 2008.  

Ármann var þingmaður á árunum 2007 til 2009 og starfaði eftir það við nýsköpun við útflutning sjávarafurða. Hann var áður aðstoðarmaður þriggja ráðherra á ellefu ára tímabili og er stofnandi auglýsingastofunnar ENNEMM þar sem hann var framkvæmdastjóri á árunum 1991 til 1995.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert