Fella niður fasteignagjöld

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. mbl.is/GSH

Á fundi sínum í gær ákvað bæjarráð Vestmannaeyja að fella niður fasteignagjöld 2012 á íbúðarhúsnæði í eigu íbúa sem eru 70 ára á árinu og eldri.  Með þessari ákvörðun gengur Vestmannaeyjabær lengra en önnur sveitarfélög hafa gert til að auðvelda eldri borgurum að búa sem lengst í eigin húsnæði, segir í tilkynningu frá bænum.

Bæjarráð telur að sterkur rekstur seinasta árs hafi búið til aukið svigrúm til að lækka álögur á eldri borgara með það fyrir augum að gera þeim kleift að búa sem lengst í eigin húsnæði.

„Inn í þessa ákvörðun spilar að illu heilli hefur ríkið verið að þrengja mjög að eldri borgurum seinustu ár og við því verða sveitarfélög að bregðast ef þau hafa til þess getu,“ segir í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ. „Þær breytingar sem gerðar voru á almannatryggingakerfinu árið 2009 skertu til að mynda tekjur aldraðra meira en annarra þjóðfélagshópa. Ákvörðun um tekjutengingu grunnlífeyris og fulla tekjutengingu fjármagnstekna hitti þennan hóp einnig illa fyrir.“

 Rekstur Vestmannaeyjabæjar hefur gengið vel seinustu ár.  Um leið og tekjur hafa aukist hefur allra leiða verið leitað til að standa vel að rekstri og leita hagræðingar. „Niðurstaðan er að Vestmannaeyjabær stendur nú sterkari en oftast áður. Þegar þannig árar er bæði eðlilegt og æskilegt að horfa til þess að létta álögum á þá hópa sem helst þurfa stuðning sveitarfélagsins. Með þetta í huga hefur Vestmannaeyjabær valið að veita öllum börnum undir 18 ára frítt aðgengi að sundlauginni, styrkir til íþrótta- og tómstundafélaga hafa verið auknir, leikskólagjöld hafa farið úr því að vera þau hæstu á landinu niður fyrir landsmeðaltal, öllum börnum í grunnskólum stendur til boða niðurgreiddur hádegismatur, fæðisgjöld á Hraunbúðum eru með þeim lægstu á landinu og lengi má áfram telja,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert