Hallur Már -
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir skýrt að lagasetning stjórnarflokkanna frá árinu 2010 um að skera úr um vexti aftur í tímann standist ekki stjórnarskrá. Hann segir þá óvissu sem nú ríki verða að skrifast á ríkisstjórnina þar sem hún hafi hunsað góð ráð við endurreisnina.