Orkan hækkar bensínverð

Bensínlítrinn er nú kominn upp í rúmar 250 krónur hjá …
Bensínlítrinn er nú kominn upp í rúmar 250 krónur hjá Orkunni

Orkan hefur hækkað verð á eldsneyti og er bensínlítrinn nú á 250,20 krónur en dísilolían á 255,80 krónur. Hin félögin hækkuðu verð sín fyrir helgi.

Hækkunin er sögð haldast í hendur við hækkanir olíuverðs á heimsmarkaði sem taldar eru stafa af flutningserfiðleikum á eldsneyti um Súez-skurðinn vegna átaka í Egyptalandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert