Viðgerð á Þór kostar milljarð

Varðskipið Þór kemur til Reykjavíkur í fyrra.
Varðskipið Þór kemur til Reykjavíkur í fyrra. mbl.is/Ómar Óskarsson

Rolls Royce, framleiðandi véla varðskipsins Þórs, hefur ákveðið að skipta um aðra aðalvél skipsins þar sem ekki hefur tekist að finna orsakir titrings sem verið hefur í vélinni umfram staðla vélaframleiðandans. Samkvæmt verkplani Rolls Royce mun skipið verða tilbúið til afhendingar að nýju eftir vélaskipti, prófanir og úttektir flokkunarfélags, sem er Loyds Register, að sex vikum liðnum frá 20. febrúar að telja eða hinn 2. apríl nk.  

Samkvæmt áætlunum Rolls Royce er gert ráð fyrir að vélin verði rifin í parta og tekin aftur úr skipinu upp um lestarlúgu og nýrri vél komið fyrir með sama hætti. Þetta er mikil framkvæmd og má búast við að kostnaður Rolls Royce við framkvæmdina nemi allt að milljarði íslenskra króna. Þetta kemur fram í frétt á vef Landhelgisgæslunnar.

Áætlanir Landhelgisgæslunnar höfðu gert ráð fyrir að Þór yrði við eftirlit og löggæslu innan íslenska hafsvæðisins og er þetta því afar bagalegt en gerðar hafa verið ráðstafanir til að tryggja viðveru varðskipanna Ægis eða Týs alla þá daga sem áætlað var að skipinu yrði siglt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert