Bjórkvöld fór algjörlega úr böndunum

Reuters

Bjórkvöld eins framhaldsskólans á höfuðborgarsvæðinu fór algjörlega úr böndunum síðustu helgi. Þegar lögreglan kom á staðinn voru þar 200-300 ungmenni og mörg þeirra undir áhrifum áfengis, en þau yngstu voru 16 ára. Sala áfengis var umsvifalaust stöðvuð og staðnum lokað.

Lögreglan minnir á að svokölluð bjórkvöld framhaldsskólanna á veitinga- og/eða skemmtistöðum eru ekki skólaböll og því er ekki sótt um leyfi fyrir samkomunum. Bjórkvöldin eru því alfarið á ábyrgð leyfishafa hlutaðeigandi staðar. 

Minnir lögreglan á að fáir nemar framhaldsskólanna eru orðnir 20 ára og er því ólögmætt að veita þeim áfengi. Enginn undir 20 ára aldri á að vera með áfengi við hönd og enginn undir 18 ára aldri á að vera yfir höfuð inni á slíkum stað nema í fylgd forráðamanna.

Undanfarið hefur lögreglan fylgst með dvöl ungmenna á veitinga- og skemmtistöðum og svo verður áfram. Reynslan sýnir að full þörf er á slíku eftirliti en lögreglan hvetur jafnframt rekstraraðila til að fara að lögum því annars geta þeir búist við viðurlögum, t.d. sviptingu eða afturköllun rekstrarleyfis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert