Vilja almennar leiðréttingar lána

mbl.is/Arnaldur

Á aðalfundi Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni, sem haldinn var í gær var stjórn félagsins falið að skora á ráðamenn þjóðarinnar að ná pólitískri samstöðu og koma til móts við þá sem tóku verðtryggð lán, með almennum leiðréttingum.

„Eftir nýlegan dóm Hæstaréttar í gengislánamálinu er orðinn verulegur munur á stöðu þeirra sem tóku gengistryggð lán og þeirra sem tóku verðtryggð lán. Stjórn félagsins minnir á nýleg ummæli formanns efnahags- og skattanefndar þar sem hann sagði að í nýrri greinargerð frá matsfyrirtækinu Fitch væri sérstaklega fjallað um að skuldir heimilanna væru enn of miklar og þær yrðu að lækka. Krafan um leiðréttingu verðtryggðra lána hefur því aldrei verið háværari og réttmætari en einmitt nú,“ segir í ályktun stjórnarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert