Dráttur í beinni

Dregið verður úr hreindýraveiðileyfum á laugardag klukkan 14:00 í húsakynnum Þekkingarnets Austurlands. Hægt verður að fylgjast með útdrættinum í beinni útsendingu á vef Umhverfisstofnunar.

Alls bárust 4.328 umsóknir um þau 1.009 dýr sem heimilt er að fella árið 2012.

Dregið verður með sama hætti og undanfarin ár í beinni útsendingu. Í ár var umsækjendum gefinn kostur á því að í útdrætti birtist annaðhvort nafn þeirra eða veiðikortanúmer. Veiðikortanúmerið helst óbreytt milli ára og er hægt að finna það á veiðikortinu, segir á vef Umhverfisstofnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert