Stækka vegna hlýnunar

Búrfellsvirkjun.
Búrfellsvirkjun. mbl.is/Ómar

Landsvirkjun ætlar að stækka Búrfellsvirkjun um 70 MW og auka framleiðsluna um 210 GWst á ári til að notfæra sér að hitastig loftslags hefur aukist – og mun halda áfram að aukast – og rennsli í Þjórsá.

Ef gert hefði verið ráð fyrir auknu rennsli frá jökulám vegna hlýnunar þegar Kárahnjúkavirkjun var reist hefði mátt auka rafmagnsframleiðslu hennar um 30% eða um 1.500 GWst á ári, eftir því sem fram kom á blaðamannafundi um nýja skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar um áhrif loftslagsbreytinga á endurnýjanlega orkugjafa í gær.

Í umfjöllun um áform þessi í Morgunblaðinu í dag kemur meðal annars fram, að undirbúningur að stækkun Búrfellsvirkjunar er langt kominn og gætu framkvæmdir við nýtt stöðvarhús hafist árið 2014. Einnig er verið að kanna möguleika á að auka afl Sultartangastöðvar um 10 MW, annaðhvort með því að reisa nýja virkjun eða keyra núverandi stöð á meira álagi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert