Svartfuglafriðun fyrir ESB?

Lundinn er meðal fimm tegunda sem lagt er til að …
Lundinn er meðal fimm tegunda sem lagt er til að friða. mbl.is/Eggert

Starfshópur á vegum umhverfisráðherra, Svandísar Svavarsdóttur, vill láta friða fimm tegundir sjófugla á þeirri forsendu að hindra verði ofveiði en sams konar friðun er í gildi í löndum Evrópusambandsins.

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi til ráðherra vegna málsins og óskað eftir skriflegu svari.

Guðlaugur Þór spyr í upphafi hvenær umhverfisráðuneytið eða stofnanir þess hafi haft upplýsingar um að íslensk lög frá 1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, væru ósamrýmanleg fuglatilskipun ESB.

„Er þetta allt í framhaldi af því að nú eru hafnar alvörusamningaviðræður um ESB og hefur VG tekið að sér forystuhlutverk í umsóknar- og aðlögunarferlinu?“ spyr Guðlaugur Þór.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert