Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu í nótt um líkamsárás í Skútuhrauni.
Þar mun hafa verið ráðist á pilt, hann laminn illa, troðið ofaní skott á bifreið og hent út í Mjóddinni. Hann mun hafa komið sér sjálfur á slysadeild en hann var bæði handleggs- og fótbrotinn auk annarra áverka. Unnið er að rannsókn málsins.