Aðalfundur Félags málmiðnaðarmanna Akureyri beinir því til stjórnvalda og borgaryfirvalda að núverandi staðsetning Reykjavíkurflugvallar verði tryggð til frambúðar. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundinum í gær.
„Verði hugmyndir um að flytja miðstöð innanlandsflugs frá Reykjavíkurflugvelli að veruleika er einsýnt að mikil afturför verður í bráðaþjónustu við þá landsmenn sem þurfa að komast til Landspítala - háskólasjúkrahúss með sjúkraflugi.
Mikilvægi nálægðar flugvallarins og sjúkrahússins er ótvírætt og getur skipt sköpum, auk þess sem flugvöllurinn gegnir lykilhlutverki í öryggisneti landsins.
Aðalfundurinn minnir á að í höfuðborginni eru staðsettar höfuðstöðvar stjórnsýslu landsins, auk flestra opinberra stofnana landsins á sviði viðskipta-, mennta-, menningar- og heilbrigðismála. Sú staðreynd kallar á greiðar samgöngur til og frá höfuðborginni, eigi Reykjavík að geta staðið undir nafni sem höfuðborg allra landsmanna.
Flutningur á miðstöð innanlandsflugs frá Reykjavíkurflugvelli er því óviðunandi afturför,“ segir í ályktun fundarins.
Vilja að framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng hefjist sem fyrst
Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri styður eindregið gerð Vaðalheiðarganga og telur mikilvægt að framkvæmdir hefjist sem fyrst, að því er segir í ályktun aðalfundarins.
Gerð ganganna muni styrkja atvinnulífið við Eyjafjörð og í Þingeyjarsýslum og bæta búsetuskilyrði til muna.
„Aðalfundurinn hvetur stjórnvöld til að standa við bakið á heimaaðilum, enda liggi fyrir fullnægjandi gögn um kostnað og rekstur ganganna.
Bent er sérstaklega á að Vaðlaheiðargöng koma til með að auka til muna öryggi vegfarenda og verða góð samgöngubót,“ segir ennfremur í ályktuninni.