Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur ekki tekið ákvörðun um hvenær efnt verður til næsta blaðamannafundar á Bessastöðum, í það skiptið um það hvort hann ætli að halda áfram sem forseti eður ei. Þetta kom fram í fyrirspurn að loknum blaðamannafundi á Bessastöðum fyrir stundu.
Fram kom í máli forsetans að hann myndi greina frá því fyrir eða eftir helgi hvort hann mundi sækjast eftir endurkjöri, fimmta kjörtímabilið í röð.