Opinn fundur um trúfrelsi á Íslandi

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra.
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra. Ómar Óskarsson

Innanríkisráðuneytið stendur fyrir opnum morgunverðarfundi um trúfrelsi á Íslandi miðvikudaginn 7. mars, kl. 8.30–10.00 á efri hæðinni í Iðnó. Þetta er þriðji fundurinn í fundaröð innanríkisráðuneytisins um mannréttindamál í tengslum við mótun landsáætlunar í mannréttindum. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra opnar fundinn og síðan flytja erindi þau Ragnhildur Helgadóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, Hjalti Hugason, prófessor við guðfræði- og trúarbragðadeild Háskóla Íslands, og Bjarni Jónsson, varaformaður Siðmenntar.

Umfangsmikil vinna fer nú fram í innanríkisráðuneytinu í tengslum við mótun landsáætlunar í mannréttindum. Með fundaröðinni er leitast við að fá sem flesta til að taka þátt í stefnumótun í í málaflokknum til að hún eigi sér ekki aðeins stað innan veggja ráðuneyta heldur í samstarfi og í beinum tengslum við hagsmunaaðila, fræðasamfélag og almenning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert