Ný réttargeðdeild á Kleppi

Frá opnun nýju réttargeðdeildarinnar á Kleppi. Frá vinstri: Sveinn Magnússon, …
Frá opnun nýju réttargeðdeildarinnar á Kleppi. Frá vinstri: Sveinn Magnússon, Guðbjartur Hannesson, Ólafur Ólafsson og Geir Gunnlaugsson. Velferðarráðuneytið

Nýtt húsnæði réttargeðdeildar Landspítala á Kleppi var formlega tekið í notkun í dag. Allir íbúar Sogns í Ölfusi þar sem réttargeðdeildin hefur starfað frá árinu 1992 munu flytjast í nýja húsnæðið á Kleppi fyrir lok þessarar viku.

„Með þessu hefst nýr kafli í réttargeðlækningum á Íslandi,“ er haft eftir Guðbjarti Hannessyni velferðarráðherra í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu.

Með flutningi réttargeðdeildarinnar á Klepp er starfsemin komin í rúmgott húsnæði á einni hæð. Aðstaða fyrir sjúklinga er um 800 fermetrar sem er 200 fermetrum meira en á Sogni.

Níu eins manns herbergi eru í húsnæðinu auk öryggisherbergis á sérgangi, unnt er að stækka deildina frekar ef þörf krefur og aðstæður gera kleift að aðskilja sjúklinga meira en mögulegt var á Sogni, ekki síst að skilja á milli svefnsvæða karla og kvenna.

Páll Matthíasson, framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítala, rakti í ávarpi við opnun deildarinnar faglegan ávinning af flutningi réttargeðdeildarinnar á Klepp. Hann nefndi meðal annars betri aðgang að fagfólki og tengsl við öryggisgeðdeild sem rekin er í sömu byggingu, mun betri aðstæður til endurhæfingar og eftirfylgni sjúklinga við útskrift og bætta möguleika þess að viðhalda tengslum sjúklinga við aðstandendur sína sem skipti afar miklu máli.

Hann nefndi ýmsar faglegar úttektir sem gerðar hafa verið á liðnum árum sem studdu eindregið ákvörðun um flutning deildarinnar til höfuðborgarsvæðisins.

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra sagði í ávarpi að opnun Sogns hefði á sínum tíma markað jákvæð tímamót í sögu íslenskrar geðheilbrigðisþjónustu fyrir tuttugu árum en heyrði nú fortíðinni til. „Nú göngum við til móts við nýja og breytta tíma með það að leiðarljósi að vinna að bættri þjónustu og aðbúnaði þeirra sjúklinga sem hér eiga í hlut. Það er skylda stjórnvalda og heilbrigðisyfirvalda að hafa ávallt réttindi, hagsmuni og velferð sjúklinga að leiðarljósi við alla ákvarðanatöku. “

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert