Jarðskjálfti sem átti upptök sín í grennd við Helgafell í Hafnarfirði fannst vel á höfuðborgarsvæðinu um klukkan hálfeitt í nótt. Að sögn veðurfræðings mældist skjálftinn á milli þrjú og þrjú og hálft stig. Frekari upplýsingar eru ekki fáanlegar að svo stöddu en tilkynningar er að vænta.
Um er að ræða þekkt skjálftasvæði og segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands ekkert óeðlilegt við jarðskjálfta af þessari stærð á þessu svæði. Samkvæmt sjálfvirkum skjálftalista Veðurstofunnar mældist skjálftinn 3,2 stig, og varð skammt frá Helgafelli á Reykjanesi klukkan hálfeitt.
Jarðskjálftinn fannst víða á höfuðborgarsvæðinu og hefur mikið verið hringt í Veðurstofuna vegna þessa en einnig hafa margir lýst upplifun sinni á samfélagsvefjum á borð við Facebook.