Jarðskjálftarnir við höfuðborgarsvæðið í fyrrinótt gefa fólki tilefni til að fara yfir jarðskjálftavarnir heimilanna, að mati Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings.
Í umfjöllun um skjálftana og afleiðingar þeirra í Morgunblaðinu segir hann lítið þurfa til að koma í veg fyrir alls konar smátjón. T.d. að athuga hillufestingar, hluti í hillum og gá hvort þungir hlutir séu nálægt rúmum.