Alvarlega slasaður eftir hnífstungu

Maður var stunginn í Lágmúla í morgun.
Maður var stunginn í Lágmúla í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karlmaður hefur verið fluttur alvarlega slasaður á slysadeild eftir að hafa verið stunginn með hnífi rétt fyrir kl. 10 í morgun í Lágmúla í Reykjavík. Annar maður var handtekinn á staðnum, grunaður um verknaðinn.

Lögreglan gat ekki svarað því hvort maðurinn hefði verið stunginn einu sinni eða oftar en víst sé að hann er alvarlega slasaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert