Málefni Orkuveitu Reykjavíkur voru rædd á borgarstjórnarfundi í dag. Tilefni umræðunnar eru upplýsingar um að OR hafa selt eignarhluta sinn í Enex Kína og Envent Holding án auglýsingar.
Hanna Birna Kristjánsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn sagði málið grafalvarlegt og bera þess merki að hvorki Orkuveitan né meirihlutinn í Reykjavík hefði skilning á mikilvægi þess að fyrirtækið starfaði í samræmi við góða stjórnsýslu og skyldur sínar sem fyrirtæki í almannaeigu. Hún minnti á ítrekaðar samþykktir borgarráðs, borgarstjórnar og stjórnar OR um önnur vinnubrögð. Hún minnti borgarstjórn einnig á ábendingar og athugasemdir umboðsmanns Alþingis, þar sem áform um sölu opinberra eigna án auglýsingar voru átalin og fylgt var eftir með einróma samþykkt borgarstjórnar um að slíkir starfshættir væru óásættanlegir.
„Það sem nú hefur verið opinberað um þessa sölu er klárlega í algjöru ósamræmi við þetta allt. Það er auðvitað með hreinum ólíkindum, eftir allt sem á undan er gengið í málefnum þessa fyrirtækis, að það skuli nú selja opinberar eigur almennings án auglýsingar. Ekki aðeins er það í ósamræmi við það jafnræði sem verður að gilda við sölu opinberra eigna, svo allir áhugasamir geti gert tilboð, heldur hlýtur það að vera í algjörri andstöðu við hagsmuni fyrirtækisins um að hámarka söluvirði eigna fyrirtækisins,“ segir Hanna Birna.
Hanna Birna vakti einnig athygli á því að málið hefði ekki verið formlega samþykkt af stjórn OR, og undraðist að hvorki borgarstjóri né meirihlutinn hefði tekið á því með nokkrum hætti síðan það varð opinbert og krafði borgarstjóra um skýr svör. „Á sínum tíma sakaði Dagur B. Eggertsson stjórnendur Orkuveitu Reykjavíkur um það sem hann kallaði „brunaútsölu í bakherbergjum“ þegar til stóð að selja eignir án opinberrar auglýsingar. Núverandi meirihluti verður að svara því hvort slíkt er á ferðinni nú. Það er alfarið á ábyrgð borgarstjóra og núverandi meirihluta að fylgja eftir samþykktum og verklagsreglum. Í þessu tilfelli var það ekki gert, sem krefst nákvæmrar skoðunar, skýrra svara og ábyrgðar,“ segir Hanna Birna.