Mjög mikil hálka er á götum Reykjavíkur og hafa fjölmörg umferðaróhöpp orðið í kvöld vegna hennar. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu hafa þó ekki orðið slys á fólki.
Það gengur á með snjókomu og dimmum éljum í höfuðborginni og beinir lögregla þeim tilmælum til vegfarenda að fara með gát.