Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað starfshóp um myrkurgæði, en hópnum er ætlað að taka saman upplýsingar um þau lög og reglur sem gilda um ljósmengun á Íslandi og víðar. Hópurinn skal skila tillögum um hugsanlegar úrbætur á þessu sviði til umhverfisráðherra næstkomandi haust.
Formaður starfshópsins er Mörður Árnason þingmaður en auk hans sitja í hópnum Snævarr Guðmundsson landfræðingur, Inga Sigrún Atladóttir, forseti bæjarstjórnar í Sveitarfélaginu Vogum, Íris Bjargmundardóttir, lögfræðingur í umhverfisráðuneytinu, og Andrés Ingi Jónsson, aðstoðarmaður umhverfisráðherra.
Ákveðið var að skipa starfshópinn í framhaldi af fyrirspurn Marðar Árnasonar þingmanns á Alþingi í janúar síðastliðnum um ljósmengun. Meðal verkefna hópsins er að hafa samráð við fræðimenn um hver séu heppileg mælanleg markmið um myrkurgæði á ýmsum tegundum þéttbýlissvæða og í dreifbýli. Sömuleiðis mun hópurinn afla vitneskju um ráðstafanir gegn ljósmengun í öðrum ríkjum og hvort þar sé stuðst við staðla eða önnur viðmið í þessu sambandi. Hópurinn mun einnig kanna möguleika á að stofna til samstarfsvettvangs með aðild sveitarfélaga, fyrirtækja, félagasamtaka og einstaklinga um að hrinda af stað vitundarvakningu í þessum efnum. Loks er stefnt að því að hópurinn standi fyrir málþingi þar sem fyrstu niðurstöður hópsins verða kynntar og kallað verður eftir athugasemdum almennings, segir í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu.
Stefnt er að því að hópurinn skili niðurstöðum sínum til umhverfisráðherra næstkomandi haust þar sem settar yrðu fram tillögur um ákvæði sem taki til ljósmengunar og myrkurgæða í lögum, reglugerðum og samþykktum ríkis og sveitarfélaga. Að auki mun hópurinn gera drög að áætlun um nauðsynlegar rannsóknir á áhrifum ljósmengunar á myrkurgæði helstu þéttbýlissvæða á Íslandi, og hversu langt hún nær út fyrir þéttbýliskjarnana.