Lyfjaþróunarfyrirtækið Genis hf. tilkynnti á fundi í gær um áætlun sína þess efnis að byggja upp lyfjaverksmiðju á Siglufirði í því húsnæði þar sem bátasmiðjan Siglufjarðar Seigur er nú staðsett.
„Síðustu sjö árin höfum við rekið litla rannsóknardeild með þremur sérfræðingum í Reykjavík þar sem við höfum verið að gera rannsóknir út um allan heim á lyfjum,“ segir Róbert Guðfinnsson, einn forsvarsmanna Genis hf., og bætir við: „En nú er komið að því að það þarf að fara að framleiða. Við munum klára þessar lyfjarannsóknir á árinu, seinnipart ársins, í Mexíkó og næsta skref er að vera með verksmiðju sem getur framleitt þetta.“
Að sögn Róberts verður framleiðslan bundin við eitt lyf, T-chos, sem ræðst gegn sjúkdómum sem byrja með bólgu. Rétt er að taka fram að T-chos er einungis vinnuheiti lyfsins. „Lyfið er algjörlega þróað af okkur, við erum komnir með einkaleyfi á það og við erum að klára núna lyfjarannsóknir á fólki,“ segir Róbert og bendir einnig á að lyfið muni fara í dreifingu úti um allan heim.
Róbert segir að starfsemin muni hefjast fljótlega á næsta ári en til að byrja með muni um 10 starfsmenn starfa í lyfjaverksmiðjunni. Hann vonar þó að starfsemin muni vaxa síðar meir. „Þetta mun byrja mjög hægt vegna þess að við þurfum að ganga í gegnum svokallaða „þriðja fasa“ rannsókn en ég myndi segja að þegar þetta væri komið upp í þann rekstur sem við viljum sjá þetta komast í, ef okkur gengur vel, þá verði þetta um 40-50 starfsmenn,“ segir Róbert.
Ákveðið var að aukahlutafé Genis hf. um hálfan milljarð króna á aðalfundi félagsins í gær en að sögn Róberts er nú þegar búið tryggja sölu á því öllu.