Lögreglan á Suðurnesjum vill vekja sérstaka athygli á því að mjög margir bílar eru eineygðir í umferðinni á Reykjanesi, þ.e. aðeins með eitt framljós í lagi.
Segir lögreglumaður að næstum því annar hver bíll sé eineygður. Lögreglan mun ekki sekta ökumenn vegna þessa fyrst í stað heldur biður fólk að koma þessu lag. Ef það verður ekki gert verður gripið til sektaraðgerða.