Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, mun bera vitni fyrir Landsdómi í dag. Hann segir að mögulega búi hann yfir upplýsingum frá sínum fyrstu dögum sem fjármálaráðherra skömmu eftir hrun sem komi að gagni. Ekki hafi mikið komið á óvart við skýrslutökurnar í Þjóðmenningarhúsinu.