Árni Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, leiddi að því líkur að strangar kröfur breska fjármálaeftirlitsins um flutning eigna úr Landsbankanum á móti innlánum vegna Icesave-reikninga í Bretlandi hafi verið liður í að þvinga íslensk stjörnvöld til að leggja fram tryggingar.
Andri Árnason, verjandi Geirs H. Haarde, spurði Árna hvort hann hefði komið að viðræðum milli fjármálaeftirlita Bretlands og Íslands um Icesave-reikingana um sumarið 2008.
„Ég fylgdist ekki með þeim.“
„Óskaði Baldur Guðlaugsson [fyrrverandi ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins] eftir að þú kæmir með beinum hætti að þessum viðræðum?“ spurði Andri.
„Nei,“ sagði Árni.
„Það hafa ekki komið þau tilmæli frá samráðshópnum [um fjármálastöðugleika] eða Baldri að þú beittir þér með beinum hætti?
„Nei. Ég man ekki eftir því... enda fór þetta í gegnum fjármálaeftirlitið og viðskiptaráðherrann,“ sagði Árni og ítrekaði að hann hefði ekki verið beðinn að grípa inn í atburðarásina.
Árni vék því næst að þeim „afturkipp“ sem hefði orðið í viðræðum fjármálaeftirlita ríkjanna um flutning Icesave yfir í breskt dótturfélag og velti því næst upp þeirri spurningu hvort þennan viðsnúning í viðmóti Bretanna megi rekja til þess „að þeir hafi verið að byggja sig upp í þá stöðu að íslensk stjórnvöld kæmu inn með fjármuni til að gera þetta mögulegt“.
Átti Árni þar við áðurnefndan flutning eigna.