Leggja líf ríkisstjórnarinnar að veði

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is

„Af hverju má bara ekki segja sannleikann í þessu máli, þegar það er öllum ljóst að málið er að tefjast vegna mikils ágreinings innan stjórnarflokkanna,“ segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag um rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma sem til hefur staðið um nokkurn tíma að leggja fram af hálfu ríkisstjórnarinnar.

„Ákveðnir þingmenn leggja líf ríkisstjórnarinnar að veði og hafa áður komist upp með slík vinnubrögð. Halda menn á stjórnarheimilinu að endalaust sé hægt að blekkja þjóðina, þvílíkur fílabeinsturn sem þau eru búin að koma sér fyrir í,“ segir Jón.

Facebook-síða Jóns Gunnarssonar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert