Hreppsráð Rangárþings ytra lýsir mikilli furðu og vonbrigðum með hugsanlegar breytingar á rammaáætlun vegna virkjana sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum síðustu daga, það er í neðri hluta Þjórsár.
„Nokkur umræða hefur verið um það í fjölmiðlum síðustu daga að ríkisstjórnin ætli að beita sér í því að gera verulegar breytingar á flokkun virkjanakosta í drögum að rammaáætlun. Það sem m.a. kveður við í þessari umræðu er að virkjanakostir í neðri hluta Þjórsár verði færðir úr nýtingarflokki í biðflokk.
Hreppsráð Rangárþings ytra lýsir yfir mikilli furðu og vonbrigðum með hugsanlegar breytingar á rammaáætlun vegna virkjana sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum síðustu daga. Sú óvissa sem þessar umræður hafa fyrir fyrir samfélagið og fyrirhugaða uppbyggingu, sem tengist virkjunum, er algerlega óásættanleg í því árferði sem við búum við á þessum tímum.
Ekki þarf að fjölyrða um þau áhrif sem slík ákvörðun gæti haft á frekari þróun atvinnulífs og atvinnutækifæra á Þjórsársvæðinu og raunar á öllu Suður- og SV-landi.
Hreppsráð skorar á stjórnvöld að rammaáætlun verði tekin alvarlega og treyst verði á að fagleg sjónarmið verði látin ráða för í ákvarðanatöku Alþingis.