Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, lýsti sig saklausan af ákæru í Al-Thani-málinu í héraðsdómi í dag. Sigurður óskaði sjálfur eftir því að fá að koma fyrir réttinn í dag til að svara spurningum um ákæruatriðin.
Sigurður og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, eru einnig ákærðir fyrir umboðssvik með því að hafa misnotað stöðu sína þegar þeir fóru út fyrir heimildir sínar til lánveitinga í september 2008 með því að láta í sameiningu bankann veita Gerland Assets, eignalausu félagi á Tortola, í eigu Ólafs Ólafssonar, sem átti 9,88% hlut í bankanum í gegnum félög sín, tæplega 12,9 milljarða króna lán í formi óundirritaðs peningamarkaðsláns, án þess að fyrir lægi samþykki lánanefndar bankans (sem Sigurður stýrði) og án þess að endurgreiðsla lánsins væri tryggð með nokkrum hætti og hafa þannig valdið bankanum verulegri fjártjónshættu.
Þeir Hreiðar Már og Sigurður eru einnig ákærðir fyrir markaðsmisnotkun með hlutabréf í Kaupþingi í september 2008 með því að láta ranglega líta svo út að þekktur fjárfestir frá Katar, sjeik Al Thani, hafi lagt fé til kaupa á 5,01% hlut í Kaupþingi þegar Q Iceland Holding keypti umræddan hlut í bankanum og leyna fullri fjármögnun bankans á hlutafjárkaupum og aðkomu meðákærða Ólafs að þeim.
Í réttarhaldinu í dag var Sigurður spurður út í afstöðu hans til ákærunnar og lýsti hann yfir sakleysi.
Upphaflega var áformað að rétta næst í málinu 29. mars, en Sigurður óskaði eftir því að fá að koma fyrir dóminn í dag vegna þess að hann er á landinu, en hann býr erlendis.
Reiknað er með að þeir þremenningarnir mæti þegar málið verður tekið fyrir 29. mars, en þá verður líka fjallað um kröfu verjanda um að fái afrit af mynd- og hljóðdiskum sem hafa að geyma skýrslutökur yfir sakborningum.