Fleiri ferðir til Landeyja með Baldur sem varaskip

Breiðafjarðarferjan Baldur.
Breiðafjarðarferjan Baldur. bb.is

Hugsanlegt er að hægt verði að auka notkun Landeyjahafnar við ferjusiglingar til Vestmannaeyja með því að hafa Breiðafjarðarferjuna Baldur í siglingum þegar höfnin er ófær fyrir Herjólf.

Þrjú skipafélög, að minnsta kosti, hafa kynnt hugmyndir sínar og kannað aðstöðu í Vestmannaeyjum vegna útboðs á rekstri Herjólfs. Auk stóru skipafélaganna, Eimskips og Samskips, hafa Sæferðir verið að athuga möguleika á tilboði.

Pétur Ágústsson framkvæmdastjóri bendir á að útboðið snúist um að gera Herjólf út. Hann segir hugsanlegt að gera frávikstilboð þar sem boðið er upp á varaskip. Þá myndi Baldur sigla til Landeyjahafnar þegar ófært væri fyrir Herjólf. Ágæt reynsla fékkst af notkun Baldurs á þessari leið í haust en Pétur segir að hvorugt skipið komist inn í höfnina í slæmum veðrum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert