Talaði ekki niður til náttúruverndarsinna

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, heldur ræðu á flokksráðsfundi flokksins.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, heldur ræðu á flokksráðsfundi flokksins. Morgunblaðið/Golli

„Ég vísa því til föðurhúsanna að talað hafi verið niður til allra þeirra sem hlynntir eru náttúruvernd.  Ég er, eins og sjálfstæðismenn almennt, mikill áhugamaður um náttúru Íslands. Hvorki þú né þín samtök hafa einkarétt á áhuga á náttúruvernd,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í yfirlýsingu vegna bréfs Náttúruverndarsamtaka Íslands til allra þingmanna. Í bréfinu gagnrýndu samtökin orð formanns og varaformanns Sjálfstæðisflokksins á flokksráðsfundi á laugardag, sem þau segja „árás á þann mikla fjölda fólks sem er hlynnt náttúruvernd og beri vott um vanþekkingu og lítilsvirðingu“.

 „Reyndar vekur það sérstaka athygli að þegar meðferð stjórnvalda á málaflokknum er gagnrýnd og nefndir eru öfgamenn í umhverfismálum, að þú skulir taka það til þín sérstaklega fyrir hönd samtakanna.  Þau hef ég hvergi nefnt á nafn,“ segir Bjarni.

 „Algerlega órökstuddar eru ásakanir þínar um vanþekkingu, lítilsvirðingu, klámhögg og gífuryrði.  Ég frábið mér skrif af þessu tagi.

 Krafan er sú að vinna við rammaáætlun verði í faglegum farvegi til enda, en ekki tekin í gíslingu.  Það dugar ekki að breiða yfir pólitískt baktjaldamakk með fagurgala um faglega meðferð,“ segir Bjarni í yfirlýsingu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert