Icelandair var stundvísast allra evrópskra flugfélaga sem eru í AEA, Evrópusambandi flugfélaga, í alþjóðaflugi í febrúarmánuði, með 90,6% stundvísi.
Í tveimur undirflokkum, þ.e. í flugi á styttri og meðallöngum flugleiðum, og í flugi á lengri leiðum, varð Icelandair annars vegar í fyrsta sæti af 25 alþjóðlegum flugfélögum með 91,3% stundvísi og hinsvegar í öðru sæti með 88,9% stundvísi, samkvæmt fréttatilkynningu frá Icelandair.
Evrópusamband flugfélaga (AEA) birtir reglulega gögn um stundvísi flugfélaga innan sinna raða.
„Við leggjum mikla áherslu á stundvísi í þjónustu Icelandair og þessi samanburður við öll helstu flugfélög álfunnar staðfestir að við erum í fremstu röð á þessu sviði. Það gekk vel í febrúar þrátt fyrir fjölbreytileg veðurskilyrði og þess vegna fórum við á toppinn að þessu sinni“, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, í fréttatilkynningu.