Talning hefst í kjöri til biskups Íslands í dag klukkan 13 og er gert ráð fyrir að henni ljúki á milli klukkan 17 og 19. Átta eru í framboði, sex karlar og tvær konur.
Frambjóðendur eru Kristján Valur Ingólfsson, Agnes M. Sigurðardóttir, Sigríður Guðmarsdóttir, Sigurður Árni Þórðarson, Örn Bárður Jónsson, Þórir Jökull Þorsteinsson, Þórhallur Heimisson og Gunnar Sigurjónsson.
Fram kemur í tilkynningu frá biskupsstofu að komi til þess að kjósa þurfi í annarri umferð á milli tveggja efstu frambjóðenda sé gert ráð fyrir að ný kjörgögn vegna þess geti verið send út 2. apríl næstkomandi og að talning færi þá fram 20. apríl.
Tekið er þó fram að þessar dagsetningar séu til viðmiðunar og verði endanlega ákveðnar síðar.