15 þúsund farþegar á dag

Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Flugstöð Leifs Eiríkssonar mbl.is

Áætlað er að umfang flugstarfsemi á Keflavíkurflugvelli slái öll fyrri met á komandi sumri. Veruleg aukning verður í leiðakerfum flugrekenda sem aldrei hafa haft jafnmarga áfangastaði í áætlunar- og leiguflugi til og frá landinu. Alls munu 17 flugfélög halda uppi ferðum til landsins í sumar og tvö ný félög hyggjast halda uppi áætlunarflugi allt árið, að því er fram kemur á vef Keflavíkurflugvallar.

Álag á starfsemina á Keflavíkurflugvelli eykst gríðarlega yfir sumarmánuðina. Síðastliðið sumar voru 18-20 farþegaflug afgreidd á háannatíma að morgni og síðdegis flesta daga vikunnar.

Samkvæmt áætlun á komandi sumri munu 23 farþegaflugferðir verða afgreiddar yfir háannatíma að morgni og síðdegis þegar álagið er hvað mest. Búist er við að um 15 þúsund farþegar fari um Flugstöð Leifs Eiríkssonar á dag þegar mest verður um háannatímann í júní, júlí og ágúst.

Á næstu vikum verður ráðist í endurbætur á flugstöðinni til þess að anna betur þessari miklu umferð og auka þægindi flugfarþega. Gerður verður nýr inngangur í norðurbyggingu flugstöðvarinnar fyrir farþega sem fluttir verða með rútum til og frá flugvélum sem fá afgreiðslu á stæðum fjarri flugstöðinni. Afköst í vopnaleit verða aukin, og sjálfsinnritunarstöðvum fjölgað í brottfararsal.


Eftirfarandi flugfélög annast áætlunar- og leiguflug á Keflavíkurflugvelli í sumar:

Air Berlin
Avion Express (WOW Air)
Air Greenland
Austrian Airlines
Delta Air Lines
Deutsche Lufthansa
easyJet
Edelweiss Air
Germanwings
Holidays - Czech Airlines (Iceland Express)
Icelandair
Niki Luftfahrt
Norwegian Air Shuttle
Primera Air
Scandinavian Airlines System
Transavia.com France
Travel Service

Frá flugstöð Leifs Eiríkssonar
Frá flugstöð Leifs Eiríkssonar mbl.is/Ómar
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert