Sigurbjörn sigraði í gæðingaskeiði

Hafliði Halldórsson, staðarhaldari á Ármóti og Sigurbjörn Bárðarson, sem sigraði …
Hafliði Halldórsson, staðarhaldari á Ármóti og Sigurbjörn Bárðarson, sem sigraði gæðingaskeiðið á meistaradeildinni í dag. mbl.is/Ingvar

Sigurbjörn Bárðarson, úr liði Lýsis, á hestinum Flosa frá Keldudal sigraði í gæðingaskeiði í Meistaradeildinni í hestaíþróttum í dag. Elvar Þormarsson, úr liðinu Spónn.is, sigraði í 150 metra skeiði á hestinum Blossa frá Skammbeinsstöðum.

Sigurbjörn lyfti sér vel í stigakeppni knapa á skeiðmótinu sem fram fór að Ármóti á Rangárvöllum. Er nú kominn upp í fjórða sæti. Æsispennandi keppni verður um sigur í mótaröðinni því Jakob Svavar Sigurðsson, Top Reiter / Ármótum og Artemisia Bertus, Hrímni, eru jöfn og efst með 41 stig. Sara Ástþórsdóttir, Ganghestum / Málningu, er í þriðja sæti með 34 stig.

Elvar og Blossi fengu tímann 14,92 í 150 metra skeiði og voru langfljótastir. Meiri keppni var um annað sætið, því náði Eyjólfur Þorsteinsson, Lýsi, á Veru frá Þóroddsstöðum á tímanum 15,11. Sigurður Vignir Matthíasson, Ganghestum / Málningu, á Birtingi frá Selá var með tímann 15,12.

Sigurbjörn og Flosi fengu einkunnina 6,50 í gæðingaskeiði. Artemisia Bertus og Dynfari frá Steinnesi fengu 6,21 og liðsfélagi hennar, Viðar Ingólfsson á Má frá Feti, fékk 6,13.

Lið Top Reiter / Ármóta er stigahæsta lið mótaraðarinnar með 280,5 stig.

Lokamótið verður í Ölfushöllinni næstkomandi föstudag.

Efstu þrír í gæðingaskeiði Sigurbjörn Bárðarson, Artemisia Bertus og Viðar …
Efstu þrír í gæðingaskeiði Sigurbjörn Bárðarson, Artemisia Bertus og Viðar Ingólfsson. mbl.is/Ingvar
Efstu þrír í 150 m skeiði í meistaradeildinni í dag …
Efstu þrír í 150 m skeiði í meistaradeildinni í dag Elvar Þormarsson, Eyjólfur Þorsteinsson og Sigurður Vignir Matthíasson. mbl.is/Ingvar
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert