Tilkynnt var um innbrot í verkstæði við Bíldshöfða til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um níuleytið í gærkvöldi.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur þjófurinn brotið rúðu í útihurð til að komast inn. Öryggiskerfið fór hins vegar í gang og er ekki vitað hvort einhverju var stolið.
Um tíuleytið í gærkvöldi var maður handtekinn á heimili sínu í Árbænum vegna fíkniefna sem þar fundust. Er hann vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins.
Eins og venjulega um helgar var mikið um útköll hjá lögreglu vegna samkvæmishávaða og mála sem tengjast ölvun.