Skíðafólk á höfuðborgarsvæðinu getur ekki farið á skíði í Bláfjöllum og Skálafelli í dag þar sem lokað er vegna veðurs. Aftur á móti eru skíðasvæði annars staðar á landinu víða opin í dag.
Í Hlíðarfjalli við Akureyri er hægt að renna sér til klukkan 16 í dag og eins á skíðasvæði Siglfirðinga og Dalvíkinga.