Þrír ökumenn reyndust aka langt yfir löglegum hraða á Reykjanesbraut þegar lögreglan á Suðurnesjum var þar við hefðbundið umferðareftirlit um helgina. Sá sem hraðast ók mældist á 140 kílómetra hraða.
Hinir tveir óku á 134 og 115 kílómetra hraða. Leyfilegur hámarkshraði á Reykjanesbraut er 90 kílómetrar.