Í morgun handtók lögreglan á Akureyri tvo menn, grunaða um rán í verslun 10/11 við Mýrarveg á Akureyri síðastliðna nótt. Við yfirheyrslur í dag játaði annar maðurinn ránið. Upplýst er að hann stóð einn að ráninu og að þáttur hins mannsins er lítill.
Þjófurinn er á fertugsaldri og hefur áður komið við sögu lögreglu á Akureyri. Við húsleit hjá honum fannst afgangur af ránsfengnum, sem var þó ekki mikill í upphafi.
Einnig fannst vopnið sem notað var við ránið skammt frá vettvangi, auk hettu og annars klæðnaðar sem maðurinn hafði notað við ránið.
Mennirnir hafa verið látnir lausir og telst málið upplýst.
Frétt mbl.is: Vopnað rán í 10/11