Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, segir að ný fyrirtæki í sjávarútvegi muni ekki lifa af verði nýtt sjávarútvegsfrumvarp samþykkt. Þau séu skuldsett og háar álögur sem felist í frumvarpinu muni ríða þeim að fullu. Þá muni fjárfestingar í greininni líklega ekki aukast.