Flug breska flugfélagsins easyJet frá London-Luton til Íslands hófst í dag og lenti fyrsta vélin á Keflavíkurflugvelli um kl. 8.30 í morgun. Flogið verður þrisvar í viku, þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga.
Farmiðar munu koma til með að kosta frá 6.600 kr. aðra leiðina og frá tæpum 12.000 kr. fyrir báða leiðir, segir í tilkynningu frá félaginu.
Til að koma til móts við vinsældir flugleiðarinnar, ákvað easyJet að hefja flug hingað til lands árið um kring og munu farmiðar í vetraráætlunina verða til sölu frá og með næsta fimmtudegi.
Fyrsta flugvél easyJet lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan 8.31 í morgun, níu mínútum á undan áætlun og var íslenskur flugmaður, Davíð Ásgeirsson, við stjórnvölinn. Hann er sérstaklega ánægður og stoltur að hafa fengið þann heiður að sitja við stjórnvölinn í þessu fyrsta flugi til Íslands, segir í fréttatilkynningu.
Talsmaður easyJet, Andrew McConnel sagði við komuna til Íslands í morgun:
„Við erum mjög ánægð með að flug frá London-Luton til Íslands sé hafið. Viðtökurnar sem við höfum fengið eru frábærar. Það stefnir í að flugleiðin til Íslands verði ein sú vinsælasta og því hefur easyJet ákveðið að fljúga allt árið til Íslands.“
Með þessari nýjustu viðbót flýgur easyJet til 30 landa en flugfélagið er eitt hið stærsta í Evrópu með 200 flugvélar í flotanum sem fljúga á yfir 600 flugleiðum.