Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fer fram á fund í efnahags- og viðskiptanefnd til að ræða áhrif sjávarútvegsfrumvarpana á bankanna. Tilgangur fundarins er að upplýsa hvaða áhrif frumvörpin hafi á bankana og þar af leiðandi ríkissjóð.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Guðlaugi Þór.
Þar segir að til fundarins verði boðaðir fulltrúar bankanna, Bankasýslunnar og ráðuneytisins.
„Mikilvægt er að upplýsa hvaða áhrif frumvörpin muni hafa á bankana og þar af leiðandi ríkissjóð. Fram hefur komið að í samningum kröfuhafa og ríkisstjórnarinnar við stofnun nýju bankanna beri ríkissjóður ábyrgð á þeim stjórnvaldsaðgerðum sem skaða efnahag bankanna. Í umræðum í þinginu hefur ráðherra upplýst að ekki hafa verið skoðuð áhrif frumvarpanna á efnahag bankanna,“ segir í yfirlýsingunni. „Það þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi málsins.“