ÓB hefur hækkað verð á bensíni um 4 krónur og kostar nú lítrinn af bensíni 266,3 krónur. N1, Olís og Skeljungur hækkuðu bensínið hjá sér í gær og fyrradag. Er lítrinn dýrastur hjá Skeljungi, kostar 268,7 krónur. Hjá N1 og Olís kostar lítrinn 266,5.
Orkan og Atlantsolía hafa ekki hækkað sín verð og kostar lítrinn þar 262,2-262,3 krónur.