Grindavíkurbær hefur þurft að leggja út 24.934.740 krónur vegna uppsagna tveggja skólastjóra í sveitarfélaginu á kjörtímabilinu. Þetta kemur fram í svari bæjarstjóra við fyrirspurn fulltrúa G-lista.
Fulltrúar G-lista spurðu á 416. fundi bæjarstjórnar um kostnaðinn, en tveimur skólastjórum, Maggý Hrönn Hermannsdóttur og Páli Leó Jónssyni, hefur verið sagt upp á kjörtímabilinu.
Í svari bæjarstjóra sem birt var á fundi bæjarstjórnar miðvikudaginn sl. kom fram, að kostnaður við starfslok skólastjóranna tveggja sé 24.934.740 kr. með launatengdum gjöldum, sem eru 5.575.205 kr. Kostnaðurinn dreifist á árin 2010-2013.