Koma mætti í veg fyrir helming allra krabbameinstilfella í Bandaríkjunum ef fólk tileinkaði sér heilbrigðari lífsstíl.
Er það niðurstaða nýrrar bandarískrar rannsóknar sem var birt í gær. Orsök um þriðjungs allra krabbameinstilfella þar í landi er rakin til reykinga og 20% þeirra eru rakin til offitu.
Í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag segir, að í stórum dráttum gildi niðurstöður þessarar rannsóknar hér á landi líka.