Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst fyrir nokkru kvörtun frá íbúum fjölbýlishúss um að mikil læti bærust frá íbúð í húsinu. Er lögregla kom á staðinn kom í ljós að um var að ræða brúðhjón sem stunduðu hvílubrögð með háværum látum.
Verkefni lögreglunnar eru af ýmsum toga en eitt af þeim tengist hávaða í heimahúsum. Talsvert er kvartað undan hávaða frá gleðskap á höfuðborgarsvæðinu og þá gjarnan um helgar þó slíkt eigi líka oft við hina fimm daga vikunnar.
Fyrir nokkru barst kvörtun af þessu tagi um helgi, en þá voru íbúar í ónefndu fjölbýlishúsi orðnir þreyttir á hávaða og látum sem bárust frá íbúð í húsinu þá nóttina.
Lögreglan hélt á staðinn og átti allt eins von á því að fjörugt og fjölmennt partí væri þar í gangi. Ekki reyndist það raunin því innandyra voru tvær manneskjur, karl og kona. Um var að ræða brúðhjón en ekki var talið að hávaðann og lætin mætti rekja til ósættis þeirra enda hveitibrauðsdagarnir nýhafnir.
„Nei, hljóðin í blokkinni reyndust stafa af öðrum athöfnum fólksins. Hér verður ekki farið út í smáatriði málsins en þó má segja að hvílubrögð brúðhjónanna voru ekki refsiverð,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.
Hávaðinn og lætin sem þeim fylgdu kunna þó að hafa verið brot á lögreglusamþykkt en engu að síður var ákveðið að aðhafast ekkert frekar í málinu. Engar frekari kvartanir bárust lögreglu eftir að hún yfirgaf vettvang.