Jarðarstundin tókst vel

Vel tókst til með jarðarstundina, eða Earth Hour, í miðborg Reykjavíkur í gær samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg en borgin var í gær í fyrsta sinn þátttakandi í viðburðinum sem ætlað er að vekja fólk til umhugsunar um orkunotkun sína. Ljós voru að þessu sinni slökkt í 5 þúsund borgum víða um heim sem tóku þátt en viðburðurinn átti sér stað á milli klukkan 20:30 og 21:30 í gærkvöldi að íslenskum tíma.

„Götuljósin í miðborginni voru ekki kveikt fyrr en 21.35. Öll lýsing var takmörkuð og slökkt var á nokkrum áberandi byggingum sem iðulega eru upplýstar. Þeir sem fylgdust með á Arnarhóli höfðu orð á því að ökumenn í bænum keyrðu mun hægar en venjulega. Tilkynningar bárust frá nokkrum hótelum að ljós yrðu slökkt, til dæmis voru einungis kertaljós á Farfuglaheimilinu á Vesturgötu og á Reykjavík Natura við Reykjavíkurflugvöll,“ segir í tilkynningunni.

Þá er sett fram sú von að fleiri sveitarfélög og fyrirtæki taki þátt í viðburðinum að ári. „Markmiðið er að spara auðlindir jarðar og efla nægjusemi í stað sóunar.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert