Vilja viðurkenningu á þjóðarmorði

Þingmenn Hreyfingarinnar, Birgitta Jónsdóttir, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari.
Þingmenn Hreyfingarinnar, Birgitta Jónsdóttir, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari. mbl.is

Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar þess efnis að Alþingi viðurkenni þjóðarmorð á Armenum árin 1915 til 1917 og virði minningu þeirra Armena sem urðu fórnarlömb þess glæps gegn mannkyni.

Með Margréti standa að tillögunni samflokksmenn hennar, Þór Saari og Birgitta Jónsdóttir, auk Lilju Mósesdóttur og Guðmundar Steingrímssonar en bæði eru þau utan þingflokka.

Í greinargerð með tillögunni segir að yfirvöld í Armeníu hafi átt erfitt með að hljóta viðurkenningu alþjóðasamfélagsins á þeim voðaverkum sem urðu umrædd ár þegar tyrknesk stjórnvöld hófu aðgerðir sem miðuðu að því að fækka Armenum í Tyrklandi. Aðgerðirnar byggðust á fjöldamorðum á armensku þjóðinni en einnig því að hrekja Armena af því svæði þar sem Armenía var en heyrir í dag undir Tyrkland til þeirra svæða þar sem nú eru Sýrland og Írak.

Þá segir, að það sé skoðun flutningsmanna að tímabært sé að viðurkenna að um þjóðarmorð hafi verið að ræða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert