Laugavegur 77 til sölu

Húsnæði Landsbankans við Laugaveg 77.
Húsnæði Landsbankans við Laugaveg 77. Eggert Jóhannesson

Húsnæðið við Laugaveg 77, sem nú hýsir útibú Landsbankans og Valitor, er til sölu. Óskað hefur verið eftir tilboðum í fasteignina en tilefnið er m.a. flutningur útibúsins í Borgartún, sem vonir standa til að verði af næsta haust.

Valgeir Valgeirsson, forstöðumaður eignadeildar Landsbankans, segir eignina fyrst hafa verið setta á sölu fyrir um ári en þá hafi ekki gengið að finna kaupendur. Aðstæður á fasteignamarkaði virðist betri nú en hann vildi ekki gefa upp hvað bankinn hefur áætlað að fá fyrir eignina.

Húsnæðið er alls 4.729 fermetrar að stærð og fylgir því byggingaréttur fyrir bílageymslu og skrifstofuhúsnæði. Frestur til að skila inn tilboðum er til 25. apríl.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert