Frestur til að skila áfangaskýrslu

Frá málflutningi í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu.
Frá málflutningi í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu.

Innanríkisráðherra hefur veitt starfshópi um Guðmundar- og Geirfinnsmál frest til að skila áfangaskýrslu. Gert var ráð fyrir að skýrslan lægi fyrir í þessum mánuði.

Ráðherra skipaði hópinn í október sl. en honum var falið að fara yfir Guðmundar- og Geirfinnsmálið í heild sinni en sérstaklega þá þætti sem snúa að rannsókn þess og framkvæmd rannsóknarinnar. Þau gögn sem komið hafa fram á síðustu misserum og árum verði tekin til athugunar.

Í stað þess að skila áfangaskýrslu í apríl hefur verið ákveðið að starfshópurinn skili ráðherra stöðuskýrslu þar sem gerð verður grein fyrir vinnu starfshópsins hingað til, framhaldi hennar og áætlun um verklok.

Á vefsvæði innanríkisráðuneytis kemur fram að hópurinn hefur haldið fjölmarga fundi, farið yfir margs konar gögn og hefur kallað til sérfræðinga sér til ráðgjafar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert