Kona var flutt í morgun með sjúkrabifreið til Reykjavíkur eftir að hafa skrikað fótur á steini og lent ofan í hver í Grænsdal fyrir innan Hveragerði.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi hlaut konan, sem var í hópi erlendra ferðamanna, annars stigs bruna á fæti.